94 min listen
28. Hekla Arnardóttir, meðstofnandi Crowberry Capital
FromAthafnafólk
ratings:
Length:
62 minutes
Released:
Jul 12, 2022
Format:
Podcast episode
Description
Viðmælandi þáttarins er Hekla Arnardóttir. Hún er meðstofnandi Crowberry Capital, sem er vísissjóður sem fjárfestir í norrænum tækni sprotafyrirtækjum á fyrstu stigum fjármögnunar. Hekla er fædd árið 1974 og alinn upp í Fossvoginum í Reykjavík. Hún gekk í Verzlunarskólann og síðan lá leið hennar í véla- og iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands þar sem hún lauk verkfræðiprófi. Hekla vann sem prófunarstjóri hjá Össuri, stoðtækjaframleiðanda og síðar sem vörustjóri hjá Össuri í Kína. Árið 2010 hóf Hekla störf sem fjárfestingastjóri hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, sem er vísissjóður í eigu íslenska ríkisins og starfaði þar í um 7 ár. Árið 2017, stofnaði Hekla vísissjóðinn Crowberry Capital ásamt meðstofnendum sínum, Helgu Valfells og Jenný Ruth Hrafnsdóttur. Síðan þá hefur Crowberry Capital, safnað í tvo fjárfestingasjóði, Crowberry I sem er fjórir milljarðar að stærð og Crowberry II sem er ellefu milljarða að stærð. Crowberry I hefur fjárfest í 16 fyrirtækjum og nýi sjóðurinn, Crowberry II hyggst fjárfesta í allt að 30 fyrirtækjum á næstu árum.
Þessi þáttur er í boði Icelandair.
Þessi þáttur er í boði Icelandair.
Released:
Jul 12, 2022
Format:
Podcast episode
Titles in the series (65)
4. Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP by Athafnafólk