55 min listen
31. Hermann Haraldsson, forstjóri og meðstofnandi Boozt.com
FromAthafnafólk
ratings:
Length:
81 minutes
Released:
Sep 13, 2022
Format:
Podcast episode
Description
Viðmælandi þáttarins er Hermann Haraldsson, meðstofnandi og forstjóri Boozt.com. Boozt.com er stærsta netverslun Norðurlandanna sem selur vörur eins og tískufatnað, íþróttaföt, snyrtivörur og heimilisbúnað. Hermann er fæddur árið 1966 og ólst upp í Reykjavík og á Akureyri. Hann flutti 14 ára til Danmerkur í heimavistaskóla, gekk í menntaskóla þar og háskóla og hefur búið í Danmörku síðan. Hermann kláraði B.Sc. próf í viðskiptahagfræði frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS) og Master í viðskiptahagfræði frá sama skóla. Hermann hefur unnið sem framkvæmdastjóri OMD Nordic, birtingahúss, sem eigandi og framkvæmdastjóri Win Win auglýsingastofunnar og framkvæmdastjóri Brøndby IF, danska fótboltaklúbbsins sem listaður er í kauphöll. Hermann stofnaði síðan Boozt.com árið 2010 og veltir fyrirtækið nú um 6,5 milljarða sænskra króna eða um 85 milljarða íslenskra króna. Höfðustöðvar Boozt.com eru í Malmö og starfa um 1400 starfsmenn hjá fyrirtækinu í Kaupmannahöfn, Árásum, Vilnius og í Póllandi. Hermann hefur einnig setið í ýmsum stjórnum m.a. hjá Adform, sjónvarpsstöðinni TV 2 og fótboltaliðinu Brøndby.
Þátturinn er kostaður af Icelandair.
Þátturinn er kostaður af Icelandair.
Released:
Sep 13, 2022
Format:
Podcast episode
Titles in the series (65)
1. Davíð Helgason, stofnandi Unity by Athafnafólk