Discover this podcast and so much more

Podcasts are free to enjoy without a subscription. We also offer ebooks, audiobooks, and so much more for just $11.99/month.

53. Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia

53. Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia

FromAthafnafólk


53. Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia

FromAthafnafólk

ratings:
Length:
71 minutes
Released:
Nov 3, 2023
Format:
Podcast episode

Description

Viðmælandi þáttarins er Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia. Guðbjörg er fædd árið 1989 og er alin upp í Garðabæ en síðan lá leið hennar í Menntaskólann í Hamrahlíð. Hún kláraði BS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og Master í framleiðsluverkfræði frá Chalmers University í Svíþjóð. Atmonia er nýsköpunarfyrirtæki sem er að þróa nýja og umhverfisvæna aðferð við framleiðslu á ammoníaki til notkunar í áburð og útblástursfrítt eldsneyti. Fyrirtækið er með þrjú útgefin einkaleyfi á efnahvötum og hefur safnað um 1,2 ma.kr. í styrki og 250 milljónir í fjárfestingu. Í dag telur teymið um 17 manns og stefnir með vöru á markað árið 2028. Guðbjörg hefur áður unnið hjá Promens plastfyrirtæki, í Svíþjóð, í verkefnum í verksmiðjunum þeirra vítt og breitt um Evrópu. Árið 2015 flutti hún aftur til Íslands, vann þá sjálfstætt og vann síðar sem breytingastjóri hjá Arion í Stafrænni Framtíð. Árið 2018 var Guðbjörg ráðin inn sem fyrsti starfsmaður Atmonia og tók síðan við sem forstjóri þar árið 2019. Guðbjörg er stjórnarmaður í Samtökum Sprotafyrirtækja og í stjórn Samtaka Vetnis- og rafeldisneytisfyrirtækja. 

Þessi þáttur er kostaður af Icelandair, Krónunni og Arion banka.
Released:
Nov 3, 2023
Format:
Podcast episode

Titles in the series (65)

Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Sesselja Vilhjálmsdóttir hefur umsjón með þáttunum. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.